Óvissuferðir á Facebook
 
| Annað fjör

Hláturjóga

  
  Nýjasta afþreyingin í boði hjá okkur er HLÁTURJÓGA 

Hláturjóga er aðferð sem þróuð er af indverska lækninum Dr. Madan Kataria.  Í hláturjóga er oftast hlegið í hópi, alltaf án tilefnis, án þess að brandarar séu sagðir eða fyndnar sögur. Hláturinn er vakinn með skemmtilegum leikrænum æfingum og með því að horfast í augu verður hláturinn fljótt eðlilegur. Hláturjóga er sambland æfinga og jógaöndunar. Það byggist á þeirri vísindalegu staðreynd  að hvort sem hlegið er vegna ytra áreitis eða af innri hvötum þá bregst líkaminn eins við og jákvæð áhrif á hann verða þau sömu.

Ásta Valdimarsdóttir sér um að fá mannskapinn til að hlæja, hún er með áralanga reynslu í kennslu á hláturjóga. Ásta lærði hláturjóga í Noregi 2001 og hefur haldið fyrirlestra um þessa hollu líkams- og sál-rækt allar götur síðan. Auk þess hefur hún sótt mörg hláturjóganámskeið og útskrifað hláturjógaleiðbeinendur hér á Íslandi.

Að stunda hláturjóga er því hollt fyrir líkama og sál og hin besta skemmtun um leið. Hláturjóga hentar öllum og á því einstaklega vel við allar gerðir hópa. Þessi afþreying hentar vel með öllum ferðum og getur farið fram nánast hvar sem er og tekur ca. eina klukkustund.


 



 
       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059