Óvissuferðir á Facebook
 
| Annað fjör

TröllaGanga - NÝTT

 

 skessan_2

Ferðinni er heitið í Borgarfjörðinn, nánar tiltekið í Fossatún. Þar er vel tekið á móti hópnum og er byrjað á því að fara í tröllagönguna góðu sem er gönguleið sem liðast upp Stekkjarás, meðfram bökkum Grímsár og tilbaka að veitingahúsinu Fossatúni. Tröllagangan tekur ca 60 mín og gefst gestum kostur á að skoða sögusvið tröllasagna, myndir og styttur af tröllum, fræðast nánar um þátt þeirra í þjóðsögunum kynnast örnefnum og koma áhyggjulausir tilbaka!. Rúsínan í pylsuendanum er svo tröllaleikirnir þar sem keppt er í tröllaþrautum s.s. tröllataki, tröllatogi, tröllasparki, tröllaorðum,  tröllafeti, tröllaparís o.fl. Þá er haldið aftur heim í Fossatún þar sem dýrindis kvöldverður bíður hópsins. Eftir matinn er svo komið að frábærri karokíkeppni í anda Eurovision.  

Bráðskemmtileg ferð sem hentar mjög breiðum aldurshópum.

Þessi ferð hentar vel fyrir þá sem vilja fara af stað eftir vinnu.

Tímalengd: ca 8 klst. Athugið að það er ekkert mál að bæta við ferðina t.d. frábærum ratleik ef óskað er eftir lengri ferð.

Samstarfsaðilar: Fossatún

 grilupottur  handarfar_drifu  jafnvaegissla trollascrabble 



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059