Óvissuferðir á Facebook
 
| Dekur

Desperate Housewives

Þessi ferð er hugsuð fyrir litla kvennahópa.  Hún gengur út á það að láta dekra við sig, þó ekki sé nema dagpart.  Dagurinn byrjar á því að farið er í létta afþreyingu.  Næst er haldið í heilsulind þar sem léttur dekurpakki tekur við, t.d. andlitsnudd eða axlanudd, vatnsgufa, heita potta og hvíldarhreiður.  Að endingu má svo hugsa sér að borða kvöldmat á einhverjum huggulegum veitingastað.

Reykjanes Housewives

Áður en haldið í dekrið fær hópurinn að stilla saman strengi sína og skella sér í hljóðver.  Haldið verður í studíó þar sem verður tekið upp lag sem hópurinn fær síðan með sér á disk.  Þá er haldið í Bláa Lónið þar sem hópurinn lætur dekra við sig í formi partanudds eða heilnudds.  Að dekri loknu verður snæddur ljúfengur kvöldverður í veitingasal Bláa Lónsins.


Suðurlands Housewives

Haldið er á Selfoss, nánar tiltekið í heilsulindina RiversideSpa sem er einstök heilsulind að evrópskri fyrirmynd. Þar fáið þið tækifæri til að hverfa frá önnum hversdagsleikans og endurnærast á sál og líkama. Baðstofan hefur ð geyma hágæða gufuklefa, blatugufu og saunaklefa, heitan pott, arineld, ísbað og slökunarherbergi þar sem allir í hópnum fá höfuð og herðanudd. Það er hreinlega ekki hægt annað en að njóta augnabliksins.Að slökun og dekri loknu verður haldið á Stokkseyri þar sem dekrið heldur áfram í formi humarveislu á veitingastaðnum Við Fjöruborðið.

Reykjavíkur Housewives

Hópurinn stillir saman strengi sína og skellir sér í hljóðver og tekur upp stuðlag dagsins.  Síðan er haldið í Laugar Baðhús þar sem hópurinn nýtur samverustundar.  Kvöldið endar svo á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur.

Aðrir möguleikar:

Annað í boði til að stilla saman strengi er afró- eða magadanskennsla, súludanskennsla, hláturjóga, brjóstsykursgerð og margt fleira.



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059