| Dekur
LipstickJungle
 |
Þessi ferð hentar litlum kvennahópum afar vel (en karlar eru að sjálfsögðu líka velkomnir). Ferðin hefst á heimsókn í Team hárstúdíó þar sem konurnar eru fylltar skemmtilegum fróðleik um hár og förðun og um leið er boðið upp á léttar veitingar. Því næst er ferðinni heitið á Selfoss þar sem einstaklega hugguleg stund er framundan í RiversideSpa sem er einstök heilsulind að evrópskri fyrirmynd. Þar fáið þið tækifæri til að hverfa frá önnum hversdagsleikans og endurnærast á sál og líkama. Baðstofan hefur ð geyma hágæða gufuklefa, blatugufu og saunaklefa, heitan pott, arineld, ísbað og slökunarherbergi þar sem allir í hópnum fá höfuð og herðanudd. Það er hreinlega ekki hægt annað en að njóta augnabliksins. Ferðin endar svo á dýrindis máltíð á veitingastaðnum Fjöruborðið á Stokkseyri. |
- Ferðin tekur ca 6-8 klst
- Þessi ferð fer öll fram innandyra og hentar því afara vel allan ársins hring
- Ferðin er unnin í samvinnu við Team Hárstúdíó, RiversideSpa og veitingastaðinn Fjöruborðið á Stokkseyri. |
|