Óvissuferðir á Facebook

 

| Hasar og meira fjör

Mögnuð ferð sem hentar þeim hópum sem vilja í senn útiveru og hasar (ath þó að hver og einn getur hasast á sínum hraða). Hópnum er skipt niður í hersveitir sem klæðast fullum herklæðum og berjast svo í lazertag úti í náttúrunni og leysa skemmtilegar þrautir sem reyna á samvinnu, útsjónarsemi og áræðni hverrar hersveitar. Dagurinn endar svo á verðlaunaafhendingu, sundferð og grillveislu.


| Hasar og meira fjör

Meiriháttar ferð fyrir þá sem vilja keppni á mjög ólíkum vígstöðvum. Tekist er á í söng, ratvísi og frisbígolfi og að sjálfsögðu endað á keppnismáltíð um kvöldið.


| Hasar og meira fjör

Glæsileg golfferð þar sem keppt er í hinu geysivinsæla frisbígolfi, báshöggum og síðast en ekki síst pútti. Þessi ferð hentar öllum, konum sem körlum, stórum sem smáum. Skipt er í lið sem keppa allan daginn undir leiðsögn skemmtilegasta golfara landsins. Eftir golfið bíður ilmandi kvöldverður í golfskálanum.


| Hasar og meira fjör

Byrjað er að halda upp á Akranes þar sem farið er í hreint magnaðan ratleik, skipt er í lið sem keppast um að leysa skemmtilegar þrautir um allan bæinn og er mikil samvinna og gott hugmyndaflug lykilatriði að sigri. Eftir ratleikinn, sem tekur ca 2 til 3 klukkustundir, er haldið


| Hasar og meira fjör

Dagurinn hefst á Álfsnesinu þar sem farið verður í frábæra keppni í leirdúfuskotfimi undir leiðsögn Skotreynarmanna. Eftir að hafa hitt nokkrar leirdúfur er svo komið að því að fara í hreint magnaðan leysibyssóleik úti í náttúrunni hjá M16. Hægt er að velja um nokkra leiki; Höfuðstöðvar sprengdar, Týndar sprengjur, Flutningalestin,


 
| Hasar og meira fjör

Ratleikur í anda Amacing Race um Hveragerðisbæ, þar sem þátttakendur leysa ýmiss konar þrautir sem krefjast góðs liðsanda og samvinnu. Því næst er komið að frábærri flugferð sem felur í sér að allir fá að sveifla sér í svifrólu yfir Varmánna – 100 m - hangandi í einum vír!!


 
| Hasar og meira fjör

-ATH aðeins í apríl - september Sigld er 7 kílómetra leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir Hvítár. Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu Drumbó og henta siglingarnar á Hvítá


 
| Hasar og meira fjör

Ferðinni er heitið á Bolöldusvæðið við Litlu Kaffistofunni þar sem Lúxus Ævintýrareisur taka á móti hópnum. Hópurinn er nú gallaður upp og gerir sig kláran fyrir magnaða fjórhjólaferð. Keyrt er inn Jósepsdalinn þar sem landslagið er mjög margslungið.


 
| Hasar og meira fjör

Leiðin liggur í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum. Þar verður tekinn hreint frábær adrenalinpakki sem samanstendur af 10 metra háum staur, risarólu og stórskemmtilegu þrautaklifri. Í garðinum er búið að setja upp þrautabrautir, og þær krefjast alls ekki allar þess að fólk sé í hrikalegu formi, enda er aðaláherslan á það


       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059