Óvissuferðir á Facebook
 
| Hasar og meira fjör

AdrenalínKIKK

Leiðin liggur í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum.  Þar verður tekinn hreint frábær adrenalinpakki sem samanstendur af 10 metra háum staur, risarólu og stórskemmtilegu þrautaklifri. Í garðinum er búið að setja upp þrautabrautir, og þær krefjast alls ekki allar þess að fólk sé í hrikalegu formi, enda er aðaláherslan á það að fólk hugsi og vinni saman! Sé þess óskað er lítið mál að bjóða upp á skipulagt hópefli og fleiri leiki og skemmtilegar þrautir sem allar byggja á samvinnu og góðum liðsanda.

Að leikjum loknum er í boði að skola af sér svitann og síðan er haldið á Úlfljótsvatn þar sem skátarnir taka vel á móti ykkur með grillveislu og tilheyrandi. 

           

Annað í boði á þessum slóðum:

Ýmislegt hópefli, kajakferðir, hellaskoðun, ratleikir, ísklifur, hestaferðir

Lengd ferðar:  ca. 6-10 tímar

 

Þessi ferð er unnin í samvinnu við Adrenalin/Ultimatule og Skátana á Úlfljótsvatni



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059