Óvissuferðir á Facebook
  /TR>
 
| Hasar og meira fjör

BorgfirzkurHristingur

Byrjað er að halda upp á Akranes þar sem farið er í hreint magnaðan ratleik, skipt er í lið sem keppast um að leysa skemmtilegar þrautir um allan bæinn og er mikil samvinna og gott hugmyndaflug lykilatriði að sigri. Eftir ratleikinn, sem tekur ca 2 til 3 klukkustundir, er haldið áfram og er næsti viðkomustaður Fossatún í Borgarfirðinum. Þar er snæddur kvöldverður og svo er keppninni haldið áfram eftir mat, nú tekur við Karokí þar sem liðin úr ratleiknum halda sér og keppt er með Eurovision ívafi, hver og einn hópur fær möppu með fullt af lögum og eftir sönginn er stigagjöf eftir Eurovisionreglum.

Þessi ferð hentar vel eftir vinnu en einnig hægt að bæta við afþreyingu og gera úr stærri ferð.


   

Ferðin er unnin í samvinnu við Ultimatule/Adrenalin og Fossatún.



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059