-ATH aðeins í apríl - september
Sigld er 7 kílómetra leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir Hvítár. Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu Drumbó og henta siglingarnar á Hvítá öllum. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar berg-myndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir fjölskyldur, starfsmannahópa og skólakrakka.
Þátttakendur sitja 4-12 saman í uppblásnum raft-báti ásamt leiðsögumanni. Í sameiningu þræðir hópurinn flúðir og gljúfur árinnar. Allir klæðast sérstökum blautgöllum, björgunarvestum og hjálmum. Því til viðbótar fá þátttakendur blautskó.
Eftir sglinguna er hægt að staldra við á Drumbó, en þar er veitingasalur og bar og er boðið upp á hina goðsagnakenndu Drumbógrillveislu "Volcanic BBQ". Þar er einnig hægt að halda hádegisverðarfund eða teiti eftir matinn.
Lengd ferðar: 6-12 tímar