
| | Hasar og meira fjör
HerFerðin
Ferðinni er heitið á M16 svæðið þar sem geggjuð hersveitakeppni fer fram. Hersveitarkeppnin felst í spennandi úti-lazertag ásamt fjölbreyttum þrautum. Hópnum er þar skipt í ca 2-4 hersveitir sem berjast svo í mögnuðum lazertag orrustum úti í skógi. Tekist er á í þrautum sem reyna á samvinnu, útsjónarsemi og áræðni hverrar hersveitar. Að lokinni keppni fær hersveitin sem sigrar orðu við verðlaunaafhendingu og verður sérsveit hópsins. Eftir hasarinn skella þeir sem vilja sér í sund áður en haldið er á Úlfljótsvatn þar sem grillveisla bíður hópsins.
- Ferðin tekur ca 8-10 klst
|