Óvissuferðir á Facebook
 
| Hasar og meira fjör

HveragerðisKapphlaup

incentives_-the_amazing_incentive_race_1Ratleikur í anda Amacing Race um Hveragerðisbæ, þar sem þátttakendur leysa ýmiss konar þrautir sem krefjast góðs liðsanda og samvinnu. Því næst er komið að frábærri flugferð sem felur í sér að allir fá að sveifla sér í svifrólu yfir Varmánna – 100 m - hangandi í einum vír!! (geggjuð upplifun). Þegar allir eru lentir hinum megin á bakkanum heldur fjörið áfram, farið verður í ýmsa skemmtilega leiki sem allir reyna á liðsanda og samvinnuhæfileika hópanna. Fyrir þá sem vilja er hægt að baða sig í ánni sem er vel volg!!  Nú ættu allir að vera búnir að hreyfa sig vel yfir daginn og því tilvalið að enda á því að fara í sund og heita potta og slappa vel af fyrir kvöldið. Dagurinn endar svo á frábærum kvöldverði á góðum stað í nágrenninu.


Ath lágmarksfjöldi í ferðina er 20 manns.

Lengd ferðar:  ca 7-9 klst.

 

 

 



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059