Keppnisferð I
Ferðin hefst í Hafnarfirðinum, nánar tiltekið í hljóðverinu hjá Magga Kjartans, þar sem hópnum er skipt niður í nokkur lið sem svo keppast um að taka upp flottasta lagið. Eftir sönginn er svo komið að mögnuðu frisbígolfi sem er leikið á svipaðan hátt og venjulegt golf nema í stað golfkylfa og golfbolta nota leikmenn frisbídiska, en frábær leiðbeinandi sér til þess að allir skemmti sér vel. Nú er svo komið að geggjuðum ratleik þar sem keppnin heldur að sjálfsögðu áfram. Eftir keppni dagsins eru allir væntanlega orðnir svangir og er því tilvalið að enda daginn á keppnismáltíð um kvöldið.
Keppnisferð II
Ferðin hefst í Hafnarfirðinum, nánar tiltekið í hljóðverinu hjá Magga Kjartans, þar sem hópnum er skipt niður í nokkur lið sem svo keppast um að taka upp flottasta lagið. Eftir sönginn er haldið á Úlfljótsvatn þar sem komið er að mögnuðu frisbígolfi sem er leikið á svipaðan hátt og venjulegt golf nema í stað golfkylfa og golfbolta nota leikmenn frisbídiska. Þegar allir eru orðnir vel golfaðir taka við geggjaðar þrautir þar sem reynir á útsjónasemi og ekki síst samvinnu þátttakenda. Dagurinn endar svo á frábærri máltíð í Úlfljótsskála í næsta nágrenni.
- Ferðin tekur ca 10+ klst
- Ferðin er unnin í samvinnu við Hljóðver Magga Kjartans, Skemmtigarðinn, Ultimatule Adrenalin, Skátana og Úlfljótsskála.