Aðventan og jólaundirbúningur á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði
Í ár sem undanfarin ár fer Álfhóll í jólabúininginn á aðventunni. Álfhóll er handverks- og listasetur á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði þar sem saman kemur hagleiksfólk sveitarinnar. Að auki er gestum boðið að tylla sér niður í sveitasækunni, hlýða á lifandi jólatónlist og gæða sér á ekta heitu súkkulaði og heimabökuðu jólabakkelsi. Á Bjarteyjarsandi er einnig rekið sauðfjárbú og ferðaþjónusta. Auk Álfhóls er boðið upp á heimsókn í útihús, leiðsögn um helstu sögustaði í Hvalfirði, aðventugöngur og fjöruferðir.
Jólamarkaðurinn verður helgarnar24.-25. nóvember og 1.-2. desember milli klukkan 13.00 og 18.00. Einnig er tekið er á móti hópum í Álfhól í nóvember og desember utan opnunartíma.