Óvissuferðir á Facebook
 
SuðurlandsFlakkari - helgarferð

Flakkið byrjar á degi eitt í Magadanshúsinu þar sem hópurinn fær kennslu í dansi (í boði m.a. afró, magadans, salsa, lapdance, Bollywood-dans). Eftir dansinn sækir rúta hópinn og er ferðinni heitið austur, nánari tiltekið í Úthlíð þar sem bækistöðvarnar verða.. þar sem allt er til alls.

Dagur tvö býður svo upp á hreint frábæra dagskrá... geggjuð hellaskoðun á Lyngdalsheiði, þar sem jarðfræðingur fræðir hópinn um alla helstu leyndardóma svæðisins, ásamt því sem að nesti verður borðað í sjálfum hellinum. Eftir hellaskoðunina er ferðinni heitið að Drumboddstöðum þar sem frábær raftsigling er málið. Að siglingu lokinni tekur við dýrindis grillveisla í veislusalnum á Drumbó. Rúta keyrir svo hópinn aftur í Úthlíð.

Á degi þrjú verður lagt af stað heim á leið um hádegið. Á leiðinni heim verður byrjað á því að renna niður á Stokkseyri þar sem hópurinn getur skoðið sig um í Draugasetrinu í ca klukkutíma. Að loknum draugalegum klukkutíma tekur við ótrúleg dekurstund í Hveragerði, partanudd og leirbað og svo heitir pottar og sund á eftir fyrir þá sem vilja. 

Svo er bara að renna í bæinn...

Lengd ferðar: 2,5 sólarhr.



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059