
Upplifðu sannkallaða miðbæjarstemningu!!
Göngutúr með henni Birnu um skemmtilega og sögulega staði í Reykjavík ... þú hefur örugglega ekki séð höfuðborgina okkar í þessu ljósi - kemur virkilega á óvart. Gangan endar í Kramhúsinu þar sem tekið er á móti hópnum með léttum veitingum og skálað í garðinum við Kramhúsið. Þar á eftir er komið að því að hrista hópinn vel saman með hópeflisstund þar sem tvinnast saman leikir, leiklist og dans. Dagurinn endar svo á huggulegum veitingastað í miðbænum.