Óvissuferðir á Facebook
 
 
| Saga og menning

ReykjanesRúntur

Ferðin hefst í hinu frábæra Saltfisksetri í Grindavík þar sem skoðuð er bráðskemmtileg sýning sem hefur að geyma sögulegar minningar frá þeim tíma er saltfiskur var aðalútflutningsvara Íslendinga. Saga saltfisksins er sögð með stórum myndum, hnitmiðuðum texta og fáum en lýsandi munum. Gínur koma í staðinn fyrir fólk í leikmyndinni. Tæknin kemur við sögu þar sem notast er við sjónvörp á gólfum, sýningartjald á vegg, 32” sjónvarp og DVD spilarar tengdir við. Mörkuð er ákveðin leið í gegnum sýninguna og sagan þannig rakin í tímaröð.  Að sýningu lokinni er boðið upp á Vín og smakk, þar sem ferðalangar fá að smakka saltfiskbollur að hætti portúgalsks matreiðslumeistara safnsins og skola bollunum niður með rauðvíni, hvítvíni eða gosi/vatni.

   

Næst er komið að því að skoða virkjunina í Svartsengi undir leiðsögn frá fróðum mönnum. Svo er vel við hæfi að skella sér í nærliggjandi Blátt Lón og gæða sér á dýrindis kvöldverði eftir baðið.

Lengd ferðar: 8-10 tímar



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059