Óvissuferðir á Facebook
 
| Sveitasæla

BorgfirzkBlanda

Við ökum um Hvalfjörð og fáum leiðsögumann til þess að hitta okkur á leiðinni.  Heyrum sögur og sagnir úr firðinum, bæði af galdrakonum og kvenskörungum, og ef tími vinnst til heyrum við eitthvað frá stríðsárunum.  Stoppum við Hvalstöðina þar sem boðið er upp á hrátt hrefnukjöt í sojasósu ásamt berjabruggi.  Þá förum við heim að Bjarteyjarsandi, en þar er mjög huggulegt listagallerí í gamla súrheysturninum. Kaffisopi og kleina þar.  

     

Áfram er haldið, og næst liggur leiðin að Hvanneyri.  Þar tekur Guðmundur Hallgrímsson, bústjóri, á móti hópnum og leiðir hann í allan sannleikann um Búvélasafnið og Ullarselið.  Hann endar á því að koma hópnum í bráðsmellið Sveita-fitness. Þessu næst er möguleiki á því að fara í sund í Hreppslauginni, en ef ekki þá er haldið beint á endastöð í þessari ferð, Fossatún. Þar er mjög góð aðstaða og  ýmislegt um að vera: Einstök nálægð við Tröllafossa og skessuna sem þar stendur vakt, Tónmilda Ísland, þar sem íslensk tónlist og náttúra fallast í faðma,  hægt að fara í allskyns skemmtilega leiki á leikjastéttinni eða mini-golf, heita potta og njóta frábærs kvöldverðar. Þar er einnig hægt að fara í karokí eða bara njóta góðrar tónlistar og annarra skemmtilegheita áður en haldið er heim á leið að nýju. Eftir kvöldmat (og dans) er haldið heim á leið að nýju. 

           

Tímalengd ferðar: 8-10 klst.



 
 
 
                         
       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059