Óvissuferðir á Facebook
 
 
| Sveitasæla

SveitaBrugg

Ferðin hefst á því að hópurinn stillir saman strengi sína í hljóðverinu hans Magga Kjartans, þar er sungið lag og tekið upp og að sjálfsögðu fáið þið diskinn með ykkur og spilið hann í rútunni alla ferðina!! Eftir sönginn er svo haldið austur og liggur leiðin í Ölvisholtið þar sem farið er í skoðunarferð um Brugghúsið en þar er kynning á því hvernig framleiðslan gengur fyrir sig. Síðan fær hver og einn að smakka almennilega á framleiðslu staðarins. Að lokum er svo haldið á Hestheima þar sem tekið er á móti hópnum með því að skála í Sveitasælu, svo skella sér allir í línudans í hlöðunni, eftir dansinn er svo boðið upp á BBQ-veislu í country stíl.

-  Þessi pakki fer allur fram innandyra og hentar því afarvel á haustin og veturna. 
Ferðin er unnin í samvinnu við Magnús Kjartansson, Brugghúsið Ölvisholti og Hestheima
og hentar bæði eftir vinnu og sem dagsferð.



       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059