Óvissuferðir á Facebook
 
 
Umsagnir ferðalanga

Starfsfólk Leikskólans Stakkaborg fór í Tröllagöngu í október 2010: "Ferðin okkar var alveg frábær í alla staði,og sýnist mér að allir séu alveg í skýjunum með hana. Ég vil bara þakka fyrir okkur og munum við alveg örugglega hafa samband við ykkur þegar næsta ferð verður plönuð. Eins vil ég hæla bílstjóranum hann var alveg frábær".

Starfsfólk S. Helgasonar fór í óvissuferð í september 2010:  " Langaði bara að láta í ljós ánægju okkar með ferðina s.l. laugardag. Þetta var frábært í alla staði og bíljstórinn á hrós skilið fyrir góða frammistöðu."

Starfsfólk Dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins fór í ferðina Ljón og Lygasögur í september 2010: "Ég vil hér með þakka Óvissuferðum kærlega fyrir vel skipulagða ferð og skemmtilega, allir hérna mjög ánægðir".

Starfsfólk Iðnaðarráðuneytisins fór í BorgfirzkaBlöndu 2010: "Þetta var alveg frábært. Allir mjög ánægðir og allt gekk upp. Guðmundur bústjóri á Hvanneyri sérstaklega frábær en líka Arnheiður á Bjarteyjarsandi og Steinar í Fossatúni, og bílstjórinn."

Starfsfólk Nóa Siríus fór í AdrenalinKikk 2010: "Óvissuferðin heppnaðist svakalega vel á föstudaginn og ég vil þakka fyrir það. Við viljum öll þakka fyrir frábæran bílstjóra ... hann verður pottþétt pantaður aftur :) svo voru allir hrikalega ánægðir í Adrenalingarðinum, hvort sem fólk var áhorfandi eða þátttakandi í þrautum og maturinn og þjónustan í Úlfljótsskála fær líka toppeinkunn!!! "

Starfsfólk Neytendastofu fór í ferðina SveitaBrugg 2008: "Þetta var bara frábært í alla staði...takk kærlega fyrir okkur"

Starfsfólk TVG Ziemsen fór í óvissuferð í september 2008: Í haust fórum við hjá TVG Ziemsen í óvissuferð á vegum Hópbíla og Óvissu. Hópurinn skellti sér m.a. á Leirdúfu skotsvæði og var það vægast sagt frábært. Allir tóku þátt og höfðu gaman af. Óvissa sá um skipulagninguna, og get ég mælst með því fyrirtæki 100% ... Takk fyrir okkur. Kv. Hulda Waage

Starfsfólk Háskólans í Reykjavík fór í ratleik á Akranesi og karokíkeppni á Fossatúni í Borgarfirðinum í september 2008: "Frábær ferð í alla staði, ratleikurinn stóð algjörlega undir væntingum og móttökur í Fossatúni frábærar. Steinar stjórnaði karíókíkeppnni snilldarlega og allir fóru ánægðir heim."

Neistinn, félag hjartveikra barna (unglingahópur) fór í fjórhjólaferð í febrúar 2008: "Við þökkum alveg kærlega fyrir okkur, þetta var alveg frábært í alla staði".

Pylsuvagninn Selfossi, fóru í Hljóðver Magga Kjartans í október 2007: "Vildi bara þakka kærlega fyrir okkur pylsusystur, þessi heimsókn okkar til ykkar í hljóðverið hjá Magga gerði þvílíka lukku og Maggi hreint út sagt frábær, skilar kveðju til hans frá okkur! bara takk kærlega fyrir :) "

Starfsfólk Háskólans í Reykjavík fór í Flúðasiglingu í septeber 2007: "Ekkert nema tóm gleði og ánægja með óvissuferðina hjá okkur í HR. Frábærlega tekið á móti okkur á Drumboddsstöðum. Siglingin ótrúlega skemmtileg og leiðsögumennirnir skemmtilegir og greinilega með allt á hreinu. Frábær matur og taumlaus gleði hjá okkur eftir matinn. .... Ég segi bara takk fyrir okkur :-)  Frábært alveg í alla staði".

Landspítali fjármálasvið hafði þetta að segja um BorgfirzkaBlöndu: "Maggi Kjartans var ÆÐISLEGUR og ferðin á Hvanneyri stórkostleg. Guðmundur er frábær sögumaður og Sveitafitnessið féll í kramið hjá öllum aldurshópum."

Hópur frá Grettisgötu 89 fór í Reykjanesrúnt: "Það voru allir yfir sig ánægðir með Magga Kjartans og svo dýrindis matinn á Bláa Lóninu. Góð þjónusta í alla staði. Herra Rútubílstjóri var mjög fínn og almennilegur ."

Íslandspóstur/útkeyrsludeild var með starfsdag og aðstoðaði Óvissa með hluta af deginum: "Við erum mjög ánægð með ykkur. Leikirnir voru skemmtilegir og tenging við þema dagsins var góð."

KPMG fékk leigða rútu og fór til Magga Kjartans í stúdíó: "Mjög góð þjónustulund skipuleggjanda, rútubílstjóri með góðan húmor og allar áætlanir stóðust og Maggi Kjartans var líka í essinu sínu ... mælum hiklaust með Óvissu fyrir næstu skipulagningu."



 






       

Óvissa ehf. | Melabraut 18 | 220 Hafnarfirði | Sími: 599 6030 | Fax: 599 6001 | Neyðarsími: 822 0080 | ovissuferdir (Hjá) ovissuferdir.is | Kennitala: 430192-2059